Glitský in Press

Mai 25, 2021

List sem örvar heilasellur þátttakenda

Lisa Geyersbach er ung og efnileg listakona og ljósmyndari búsett í Reykjavík og var að ljúka mastersnámi í hönnun við Listaháskóla Íslands.

Árið 2020 stofnaði Lisa stafræna listagalleríið Glitský ásamt annarri listakonu að nafni Guðný Sara Birgisdóttir. Þetta öfluga dúó sérhæfir sig í list og hönnun sem hafa áhrif á skynjun og örva heilasellur þátttakenda.

Glitský býr yfir ýmsum skemmtilegum verkum frá listafólki sem glímir við heilabilun en Lisa hefur mikið rannsakað áhrif listar á fólk sem glímir við slíka sjúkdóma. Rannsóknir hafa sýnt fram á þau ótrúlegu áhrif sem list getur haft á skynjun, minni, hæfni, samskipti og sjónræna virkni.

Hönnun fyrir heilabilun er rannsókn á því hvernig tilfinningaleg hönnun getur hjálpað og stutt við fólk sem glímir við taugahrörnunarsjúkdóma á borð við alzheimer í gegnum daglegar athafnir sínar á elliheimilum og hvernig hönnun hefur áhrif á og getur auðveldað sjónræn samskipti.

Áhugi Lisu á heilabilun vaknaði þegar amma hennar var greind með alzheimer sumarið 2012. Amma hennar og afi bjuggu þá hjá fjölskyldu Lisu og deildu þau öll stóru húsi í litlum bæ í austurhluta Þýskalands. Fjölskyldan hugsaði saman um ömmu hennar í fjögur ár og segir hún það hafa verið þungbært að sjá ömmu sína flytja inn á heimili fyrir aldraða og heilabilaða.

Sjúkdómurinn hafði veruleg áhrif á daglegar venjur ömmu hennar og einnig á skilning hennar á tíma og rúmi, en það er eitt helsta vandamál þeirra sem þjást af þessum sjúkdómi.

Í meistararannsókn sinni kannaði Lisa möguleika þess að þróa og nýta leiðarkerfi fyrir einstaklinga sem þjást af alzheimer og leiðarkerfið styðst við vettvangsrannsóknir hennar á hjúkrunarheimilum á Íslandi ásamt viðurkenndum rannsóknum á áhrifum alzheimer á skynfærin.

Hinn 19.-23. maí munu Lisa og Guðný Sara opna sína fyrstu Glitskýs-sýningu utan vefheima og fer hún fram í stúdíó Ingimar, Nomad-versluninni á Frakkastíg 8f. Ótrúlega merkilegt og áhugavert verkefni og ég mæli með því að gera sér ferð á sýningu Glitskýs.

https://k100.mbl.is/frettir/2021/05/20/list_sem_orvar_heilasellur_thatttakenda/?fbclid=IwAR0pfqo9VBcRPASS1mev9pBBGbLnnIPtQnUyG2HdvVSUxUrzjT7uft6AkXA

SHARE THIS STORY